02.10.2026

Styrkás undirritar samning um kaup á Malbikstöðinni

image

Styrkás hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. („Malbikstöðin“) og lóðum félagsins á Esjumelum. Seljandi er félag í eigu Vilhjálms Þórs Matthíassonar. Viðskiptin eru háð hefðbundnum fyrirvörum, meðal annars um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Með kaupunum verður til fimmta kjarnasvið Styrkás og verður Vilhjálmur Þór einn af stærri hluthöfum í Styrkás.

Malbikstöðin á rætur að rekja til ársins 2004 og sérhæfir sig í framleiðslu og útlögn malbiks fyrir vegi, göngustíga og bílastæði. Félagið rekur malbikstöð á Esjumelum og býr yfir öflugum tækjakosti, sérhæfðu starfsfólki og traustum viðskiptasamböndum.

Sterkt félag með mikla vaxtarmöguleika

Malbikstöðin verður rekin sem sjálfstætt félag innan samstæðu Styrkás í kjölfar viðskiptanna. Með viðskiptunum bætist við sérþekking og framkvæmdageta sem styrkja þjónustu samstæðunnar við sveitarfélög, verktaka og aðra viðskiptavini í uppbyggingu og viðhaldi samgönguinnviða.

Vilhjálmur stofnaði Malbikstöðina og hefur á 22 árum byggt hana upp í að veita framúrskarandi þjónustu sem sinnir allri virðiskeðjunni, frá framleiðslu til útlagnar. Um 55 starfsmenn félagsins þjóna viðskiptavinum en í hópi þeirra eru stærstu sveitarfélög landsins, verktakar og önnur fyrirtæki.

Athafnasvæði félagsins á Esjumelum skapar tækifæri til að sameina starfsemi Malbikstöðvarinnar á einn stað og veitir gott svigrúm fyrir framtíðaruppbyggingu Styrkás samstæðunnar á svæðinu. Stöðin á Esjumelum á mikið inni og getur félagið aukið framleiðslu umtalsvert með núverandi innviðum.

Rekstrartekjur Malbikstöðvarinnar námu 2,8 milljörðum króna árið 2025. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 779 milljónum króna, eða 27% af tekjum, og rekstrarhagnaður (EBIT), án söluhagnaðar eigna, nam 499 milljónum króna. Heildareignir um síðustu áramót voru bókfærðar á 3,4 milljarða króna og eiginfjárhlutfall var 78%.

Tilgangur viðskiptanna er að efla þjónustu Styrkás við uppbyggingu innviða og þjónusta núverandi viðskiptavini enn betur með auknu vöruframboði. Vegakerfi Íslands er um 26.000 kílómetrar en þar af eru einungis 8.400 kílómetrar af bundnu slitlagi. Aukinn umferðarþungi kallar á vaxandi þörf fyrir malbikun vega. Samtök iðnaðarins hafa áætlað að viðhaldsþörf í vegakerfinu nemi á bilinu 265-290 milljarðar króna og samgönguáætlun gerir ráð fyrir um 600 milljarða króna fjárfestingu í vegakerfinu til næstu 15 ára.

Heildareignir Styrkás eftir viðskiptin nema um 54 milljörðum króna, eigið fé um 26 milljörðum króna.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er áætlað að verði 48% eftir viðskiptin.

Um viðskiptin

Heildarvirði Malbikstöðvarinnar í viðskiptunum (e. Enterprise Value) er 5.080 milljónir en þar af eru um 80 milljónir króna árangurstengdar og koma til greiðslu ef viðmið um rekstrarhagnað næstu þriggja ára nást. Til viðbótar er kaupverð 28 þúsund fermetra lóðar að Gullsléttu 900 m.kr. með inniföldum gatnagerðargjöldum.  Heildarvirði Malbikstöðvarinnar og lóða er því samtals 5.980 m.kr. Kaupverð verður greitt með útgáfu 138,7 milljón nýrra hluta í Styrkás hf. á genginu 26,68 kr. á hlut, handbæru fé og yfirtöku skulda. Útgáfa hinna nýju hluta er með fyrirvara um samþykki hluthafafundar fyrir hlutafjáraukningunni. Eftir viðskiptin mun seljandi eignast 10,2% hlutafjár í Styrkás.

Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás:

„Kaupin á Malbikstöðinni eru í samræmi við stefnu Styrkás um að byggja upp þjónustufélag við uppbyggingu innviða. Í Malbikstöðinni fara saman sterkur rekstur, frábært starfsfólk og mikil tækifæri til vaxtar. Ísland stendur frammi fyrir stórri áskorun við uppbyggingu innviða sem sterkur samhljómur er um að tímabært sé að ráðast í. Með viðskiptunum verður til nýtt kjarnasvið sem styrkir getu Styrkás samstæðunnar til að taka þátt í því verkefni. Við fögnum því að fá Malbikstöðina og starfsfólk þess í hópinn.“

Vilhjálmur Þór Matthíasson, stofnandi og eigandi Malbikstöðvarinnar:

„Ég sel ekki af því að ég vilji hætta, heldur af því að ég vil tryggja Malbikstöðinni og starfsfólki hennar góða framtíð meðan ég hef sjálfur fulla starfsorku. Ég hef séð of mörg góð fyrirtæki lenda í vanda þegar kemur að kynslóðaskiptum og ég vil að Malbikstöðin sé vel undirbúin fyrir næsta kafla í sinni sögu. Styrkás er rétti staðurinn fyrir félagið vegna þess að Styrkás hefur skýra sýn á framtíðartækifæri Malbikstöðvarinnar. Ég hef mikla trú á Styrkás og þess vegna sóttist ég eftir að fá stærstan hluta kaupverðsins í hlutabréfum. Með traustan bakhjarl getum við nýtt þau tækifæri sem felast í starfsemi Malbikstöðvarinnar.“

Ráðgjafar kaupanda í viðskiptunum eru Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans, BBA // Fjeldco, Fontes Ráðgjöf og KPMG. Ráðgjafar seljanda í viðskiptunum eru Mörkin lögmannsstofa.

 

logo

Fleiri fréttir