Framkvæmdastjórn

Daglegum rekstri Styrkás er stýrt af framkvæmdastjórn félagsins sem starfar í samræmi við stefnu stjórnar og ber ábyrgð á framgangi stefnumótunar og langtímamarkmiða samstæðunnar. Í framkvæmdastjórn sitja forstjóri, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, framkvæmdastjóri upplýsingatækni og framkvæmdastjóri Innri þjónustu. Forstjórar kjarnasviða Styrkás eiga jafnframt sæti í framkvæmdastjórn samstæðunnar.

Ásmundur Tryggvason

Ásmundur Tryggvason

Ásmundur var ráðinn forstjóri Styrkáss í október 2023. Ásmundur var áður framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestasviðs Íslandsbanka um tæplega fimm ára skeið og var þar áður forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar bankans í sjö ár. Hann hefur jafnframt setið í stjórnum ýmissa félaga, eins og Símans, Lýsingar, VÍS eignarhaldsfélags og Kögunar.

Jóhanna Helga Viðarsdóttir

Jóhanna Helga Viðarsdóttir

Jóhanna Helga leiðir Innri þjónustu Styrkás en undir sviðið heyra sjálfbærni- og gæðamál, mannauðsmál, samhæfing markaðsmála og verkefnastýring lykilverkefna á samstæðugrunni. Jóhanna er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands og víðtæka reynslu úr atvinnulífinu en hún hefur starfað sem stjórnandi hjá Símanum, Reiknistofu bankanna, 365 miðlum, Torgi og síðast Skeljungi þar sem hún hefur verið í starfi framkvæmdastjóra Sjálfbærni og stafrænnar þróunar frá árinu 2022.

Birna María Sigurðardóttir

Birna María Sigurðardóttir

Birna leiðir fjármálasvið Styrkás samstæðunnar. Birna hefur yfir átján ára reynslu af endurskoðun, áhættustýringu og rekstri, meðal annars sem eigandi og framkvæmdastjóri rekstrar og fjármála hjá Deloitte. Hún hefur víðtæka reynslu af innri endurskoðun, áhætturáðgjöf og fjölbreyttri ráðgjöf til fyrirtækja. Birna María er löggiltur endurskoðandi og með M.Acc.-gráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskóla Íslands, auk þess sem hún lauk Advanced Management Program frá IESE viðskiptaháskólanum í Barcelona.

Gunnar Skúlason

Gunnar Skúlason

Gunnar leiðir samþættingu dótturfélaga Styrkás og stjórnun verkefna tengdum innri og ytri vexti samstæðunnar. Gunnar hefur gegnt stöðu fjármálastjóra hjá Styrkási og Kletti frá árinu 2023 og leitt uppbyggingu fjármálasviðs samstæðunnar. Hann starfaði áður sem sérfræðingur í viðskiptagreind hjá Skeljungi og ráðgjafarfyrirtækinu Expectus. Gunnar er með B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc.-gráðu í aðgerðarrannsóknum frá DTU í Danmörku.

Finnur Þór Erlingsson

Finnur Þór Erlingsson

Finnur leiðir samþættingu og uppbyggingu upplýsingatækni innviða innan Styrkás samstæðunnar. Finnur hefur yfir tuttugu ára reynslu á sviði hugbúnaðarþróunar og upplýsingatækni, meðal annars sem framkvæmdastjóri og tæknistjóri hjá Corivo og forstöðumaður upplýsingatækni hjá Kviku. Hann hefur víðtæka reynslu af rekstri og innleiðingu upplýsingatæknilausna. Finnur er menntaður tölvunarfræðingur (BSc) frá Háskólanum í Reykjavík.