15.09.2026

Sjálfbærni í verki hjá Styrkás

image

Styrkás bauð nýlega upp á fræðslu um sjálfbærni fyrir starfsfólk samstæðunnar, bæði á staðnum og í streymi á Teams, auk þess sem upptaka var gerð aðgengileg fyrir þá sem vildu horfa síðar. Í fræðslunni var farið yfir grunnatriði málaflokksins, mikilvægi hans fyrir fyrirtækið og hvernig Styrkás vinnur að því að samþætta sjálfbærni við starfsemi og stefnu samstæðunnar. Fræðslan stóð öllu starfsfólki samstæðunnar til boða og miðaði að því að skapa sameiginlegan skilning á því hlutverki sem fyrirtæki og starfsfólk gegna í sjálfbærum rekstri.

Í fræðslunni var lögð áhersla á að sjálfbærni nær yfir mun fleiri þætti en loftslags- og umhverfismál. Hún snýr jafnframt að félagslegum þáttum og góðum stjórnarháttum, þar á meðal öryggi og heilsu starfsfólks, mannréttindum, ábyrgum innkaupum, viðskiptasiðferði og ábyrgri stjórnun.
Fyrirtæki sem sinna þessum þáttum markvisst eru betur í stakk búin til að greina áhættu og tækifæri, byggja upp traust og skapa langtímaverðmæti fyrir starfsfólk, viðskiptavini, eigendur og samfélagið í heild.

Undanfarin ár hefur Styrkás byggt upp sameiginlega nálgun að sjálfbærnimálum innan samstæðunnar. Sú vinna felur meðal annars í sér losunarbókhald, greiningu á mikilvægum sjálfbærniþáttum, áhættustýringu, aukna áherslu á heilbrigði og öryggi, ábyrga virðiskeðju og reglubundna upplýsingagjöf um árangur samstæðunnar. Sjálfbærni birtist einnig með fjölbreyttum hætti í daglegri starfsemi fyrirtækja samstæðunnar. Viðgerðir, viðhald og þjónusta hjá Kletti lengja líftíma tækja og búnaðar, endurnýting gáma hjá Stólpa styður við hringrásarhagkerfið, örugg og ábyrg meðhöndlun á mengandi efnum hjá Skeljungi og Hreinsitækni eru allt dæmi um hvernig starfsemi félaga Styrkás getur bætt nýtingu auðlinda, dregið úr þörf fyrir ótímabæra endurnýjun og dregið úr umhverfisáhrifum.

Það undirstrikar að sjálfbærni felst ekki eingöngu í því að draga úr áhrifum eigin starfsemi, heldur einnig í því að nýta þekkingu, þjónustu og lausnir fyrirtækjanna til að styðja viðskiptavini í eigin sjálfbærniverkefnum. Áhersla er lögð á að sjálfbærni sé ekki afmarkað verkefni heldur hluti af daglegum rekstri. Starfsfólk gegnir þar lykilhlutverki, enda stuðla markmið og stefnur að raunverulegum árangri í gegnum dagleg störf, ákvarðanir og umbætur innan fyrirtækjanna.

logo

Fleiri fréttir