Styrkás samstæða samanstendur af fjórum kjarnasviðum, sem öll þjónusta uppbyggingu innviða og atvinnuvega og eru í örum vexti
Byggðu framtíðina með okkur
Framtíðarsýn Styrkás sem samstæðu er að vera fremst í þjónustu á fyrirtækjamarkaði með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. Starfsfólk samstæðunnar er undirstaða árangurs. Styrkás leggur áherslu á að laða að hæft og metnaðarfullt starfsfólk. Það gera félög Styrkás með því að byggja upp góða og eftirsótta vinnustaði. Í því felst að leggja áherslu á vandað ráðningarferli, starfsánægju, skapa tækifæri til starfsþróunar og að vel sé staðið að aðbúnaði, öryggi og réttindum starfsfólks. Styrkás vill skapa vinnustaðamenningu þar sem frumkvæði starfsfólks sem stuðlar að bættum vinnubrögðum og árangri í rekstri er vel tekið og starfsfólk er hvatt til að vinna saman þvert á félög innan samstæðu. Hjá Styrkás er lögð áhersla á að skapa hvetjandi vinnustaðamenningu þar sem allt starfsfólk vinnur saman að því að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og hefur jafnframt hvata til þess að samstæðunni gangi vel. Hún er undirstaða þess að skapa góðan starfsanda og árangursdrifið starfsumhverfi.

10
Starfsmenn hjá móðurfélagi
4
Dótturfélög
400+
Starfsmenn hjá samstæðunni
2022
Stofnað
Af hverju Styrkás?
Tækifæri hjá samstæðu í vexti

Orka og efnavara
Skeljungur þjónar orkuþörf fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta

Tæki og búnaður
Klettur er leiðandi í sölu og þjónustu við atvinnutæki og annan búnað

Eignaumsýsla og leigustarfsemi
Stólpi er leiðandi í sölu og leigu húseininga og vinnubúða til fyrirtækja og opinberra aðila

Umhverfi og iðnaður
Hreinsitækni styður bæði opinbera aðila og fyrirtæki við að tryggja örugga og hagkvæma þjónustu við rekstur og viðhald mikilvægra innviða samfélagsins
Hvetjandi fyrirtækjamenning
Hjá Styrkás er lögð áhersla á að skapa hvetjandi vinnustaðamenningu þar sem allt starfsfólk vinnur saman að því að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og hefur jafnframt hvata til þess að samstæðunni gangi vel. Hún er undirstaða þess að skapa góðan starfsanda og árangursdrifið starfsumhverfi.
Gildin okkar
Það sem sameinar okkur
Starfsfólk samstæðunnar er undirstaða árangurs. Samstæðan hefur sett sér þrenn gildi sem áhersla er lögð á að unnið sé eftir þvert á samstæðu.
Frumkvæði
Við hvetjum starfsfólk til að taka frumkvæði og þora að fara nýjar leiðir. Með samvinnu milli félaga innan samstæðunnar sköpum við tækifæri til að veita viðskiptavinum betri þjónustu og um leið ná árangri í okkar rekstri.
Samvinna
Við hvetjum til samstarfs þvert á öll félög samstæðunnar, því að við vitum að við náum meiri árangri sem ein heild en hver fyrir sig. Við höfum skýra verkaskiptingu, markmið og við mælum árangur.
Tilbúin í breytingar
Við erum alltaf tilbúin að aðlagast, þróast og leita leiða til að gera breytingar sem eru til bóta fyrir viðskiptavini samstæðunnar. Við vinnum vel hvert með öðru og deilum þekkingu til að ná meiri árangri.
Tækifæri innan samstæðu
Laus störf
Styrkás - almenn starfsumsókn
Hér leggur þú inn almenna umsókn um störf hjá Styrkás samstæðunni. Innan Styrkás starfar, Klettur, Skeljungur, Stólpi Gámar og Hreinsitækni. Við erum með fjölbreytt störf í boði.
