21.09.2026
Stólpi og Hafnarfjarðarbær í samstarf um uppbyggingu íbúðarsvæðis fyrir starfsfólk í tímabundinni vinnu

Stólpi og Hafnarfjarðarbær hafa hafið samstarf um þróun og uppbyggingu um 10 hektara svæðis við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarveg í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir allt að 130 húseiningum með um 260 íbúðum sem ætlaðar eru til tímabundinnar búsetu fyrir starfsfólk í verkefnatengdri vinnu. Samkomulagið sjálft er gert milli Styrkás Fasteigna ehf., systurfélags Stólpa, og Hafnarfjarðarbæjar, með hefðbundnum fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.
Stólpi hefur um árabil unnið að þróun og framleiðslu hagkvæmra og vandaðra húseininga og meðal annars byggt leikskóla og lögreglustöð úr slíkum einingum. Félagið er kjarnafélag Styrkás á sviði eignaumsýslu og leigustarfsemi og býr yfir víðtækri reynslu af rekstri og útleigu húsnæðis og búnaðar fyrir atvinnulífið. Með verkefninu vill Stólpi bregðast við þörf fyrir vandað og öruggt húsnæði fyrir erlent verkafólk sem kemur til starfa á Íslandi til skemmri tíma, en sá hópur hefur á köflum búið við misjafnar aðstæður í húsnæði sem hvorki hefur verið byggt né skipulagt til búsetu. Stólpi mun hafa umsjón með áframhaldandi vinnu við verkefnið, þar á meðal uppsetningu og útleigu, og samkomulagið við Hafnarfjarðarbær kveður á um hvernig næstu skrefum verði hagað við skipulag svæðisins.

Dæmi um útlit einingahúsanna. Mynd: Batteríið Arkitektar.
Um verkefnið
Samkvæmt samkomulaginu veitir Hafnarfjarðarbær heimild til að vinna tillögu að skipulagslýsingu og í kjölfarið deiliskipulagi svæðisins. Skipulagslýsing skal liggja fyrir 1. október 2026 og stefnt er að því að deiliskipulagstillagan verði auglýst til kynningar í febrúar 2027 og að skipulagsferlinu ljúki í maí 2027.
Uppbyggingin fer fram í tveimur áföngum. Í fyrsta áfanga er stefnt að því að byggð verði 50 hús með 100 íbúðum og í öðrum áfanga er stefnt að byggingu 80 húsa með 160 íbúðum. Samtals er því stefnt að byggingu 130 húsa með 260 íbúðum. Húsin eru hönnuð af Batteríinu Arkitektum og byggð með einingalausnum frá tékkneska fyrirtækinu KOMA MODULAR, sem sérhæfir sig í einingahúsum. Um er að ræða 35 fermetra einingar sem raðast tvær og tvær saman í parhús, klæddar stálklæðningu í jarðtónum. Stólpi hefur umsjón með uppsetningu og leigir húsnæðið út til fyrirtækja til afnota fyrir starfsfólk þeirra. Stefnt er að því að fyrstu íbúðirnar rísi á síðari hluta árs 2027, fullbúnar og í samræmi við alla gildandi byggingarstaðla.

Skipulagstillaga fyrir svæðið: 130 hús og um 260 íbúðir. Mynd: Batteríið Arkitektar.
Einingarnar eru jafnframt hannaðar þannig að hægt verði, að loknum 10 ára samningstíma, að fjarlægja þær og nýta á annarri staðsetningu. Jafnframt á Styrkás Fasteignir þá rétt til úthlutunar lóða á svæðinu til uppbyggingar varanlegs íbúðarhúsnæðis, þannig að fjárfesting í innviðum nýtist áfram þegar uppbygging hefðbundins íbúðarhúsnæðis hefst á svæðinu.
Fyrirkomulag útleigu
Lóðarleigusamningar sem gerðir verða á grundvelli samkomulagsins verða til 10 ára, með möguleika á framlengingu. Húsnæðið verður ávallt í eigu og á ábyrgð sama aðila og eingöngu leigt til fyrirtækja, ekki einstaklinga, til afnota fyrir starfsfólk þeirra á meðan á ráðningarsambandi stendur, en er hvorki ætlað fjölskyldum né til varanlegrar búsetu eldra fólks. Verkefnið er liður í því að stuðla að fjölgun íbúa í Hafnarfirði, þar sem gert er ráð fyrir að þeir sem þar búa skrái lögheimili sitt í sveitarfélaginu eftir því sem við á. Stólpi annast daglegan rekstur, útleigu og viðhald húsnæðisins, í takt við kjarnastarfsemi félagsins á sviði eignaumsýslu og leigustarfsemi.

Þórður Þórarinsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Hildur Rós Guðbjargardóttir bæjarfulltrúi, Orri Björnsson formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, Börkur Grímsson forstjóri Stólpa, Ásmundur Tryggvason forstjóri Styrkás, Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason stjórnarformaður Styrkás.
Börkur Grímsson, forstjóri Stólpa:
„Við höfum um árabil unnið að þróun húseininga fyrir fjölbreytt verkefni og þekkjum vel þarfir atvinnulífsins fyrir gott húsnæði til skemmri tíma. Samstarfið við KOMA MODULAR og Batteríið Arkitekta tryggir vandaða hönnun og útfærslu, og að Hafnarfjörður fái búsetuúrræði sem endurspeglar þá samfélagslegu ábyrgð sem við viljum sýna í verki.“
Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar:
„Það skiptir miklu að fólk sem sinnir tímabundnum störfum hér á landi eigi kost á öruggu og góðu húsnæði. Dæmi eru um að fólkið hafi búið við óviðunandi aðstæður í húsnæði sem ekki hefur verið byggt til búsetu og sem jafnvel getur stafað hætta af. Með uppbyggingu Stólpa eykst framboð af öruggu og hagkvæmu húsnæði hratt. Það er mikilvægt að fólk geti búið sér gott heimili meðan það starfar á landinu og skráð lögheimili sitt í Hafnarfirði,“


