Starfsfólk

Starfsfólk Styrkás sinnir lykilhlutverkum á samstæðugrunni, meðal annars á sviðum fjármála, upplýsingatækni, mannauðs, markaðsmála, sjálfbærni og verkefnastýringar, og styður þannig við rekstur og þróun kjarnasviða samstæðunnar.

Linda Björk Halldórsdóttir

Linda Björk Halldórsdóttir

Linda Björk Halldórsdóttir er forstöðumaður Mannauðs en starfið tilheyrir sviði Innri þjónustu Styrkáss. Linda kom til Styrkáss frá Skeljungi þar sem hún sinnti starfi mannauðsstjóra frá árinu 2018. Linda er með mastersgráðu í Mannauðsstjórnun og B.S í Viðskiptafræði.

Unnur Þórdís Kristinsdóttir

Unnur Þórdís Kristinsdóttir

Unnur Þórdís verkefnisstýrir sjálfbærnistarfi Styrkáss ásamt því að hafa eftirlit með gæða og öryggissmálum á samstæðugrunni. Unnur starfaði áður sem sérfræðingur í sjálfbærni hjá Controlant og þar áður hjá Marel. Unnur er með B.Sc. í Viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og Esade Business School. Ásamt diplómu í Umhverfis- og Auðlindafræði frá Háskóla Íslands.

Bergdís Una Margrétardóttir

Bergdís Una Margrétardóttir

Bergdís þjónustar dótturfélög samstæðunnar sem sérfræðingur í innheimtu og viðskiptamannabókhaldi. Bergdís starfaði áður hjá Baader sem aðstoðarmaður á fjármálasviði, hjá Leigufélaginu Bríet sem sérfræðingur leigumála, ÍLS sem verkefnastjóri fullnustueigna og verkefnasjóri innheimtu og hjá Creditinfo sem fulltrúi. Bergdís er með diploma í APME verkefnastjórnun.

Benedikt Lárusson

Benedikt Lárusson

Benedikt þjónustar dótturfélög sem sérfræðingur á fjármálasviði með áherslu á greiningar, áætlanagerð og gagnamál. Hann starfaði áður hjá Kletti, fyrst sem sumarstarfsmaður og síðar sem sérfræðingur á fjármálasviði. Benedikt er með B.S í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Sveinn Símonarson

Sveinn Símonarson

Sveinn leiðir mótun og þróun langtímasamskipta við lykilviðskiptavini innan samstæðu Styrkás ásamt því að styðja við samþættingu sölu og þjónustu á milli kjarnasviða.

Baldur Arge Sveinsson

Baldur Arge Sveinsson

Baldur hefur umsjón með verkefnastýringu markaðsherferða Styrkás og dótturfélag.