Stjórn
Stjórn Styrkás fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda og ber ábyrgð á stefnumótun félagsins og eftirliti með rekstri þess. Í störfum sínum leggur stjórnin áherslu á ábyrgð, gagnsæi og faglega stjórnun í samræmi við góða stjórnarhætti. Stjórnin starfar samkvæmt starfsreglum þar sem kveðið er á um hlutverk hennar og samskipti stjórnar, stjórnarformanns og framkvæmdastjóra.

Ásgeir er forstjóri Skel fjárfestingafélags og hefur átt sæti í stjórn Styrkáss frá nóvember 2023.

Hermann er forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Landsbréfum og framkvæmdastjóri Horns IV slhf. Hermann hefur átt sæti í stjórn Styrkáss frá nóvember 2023.

Berglind er sjóðstjóri hjá sérhæfðum fjárfestingum Landsbréfa og hefur átt sæti í stjórn Styrkáss frá nóvember 2023.

Liv er forstjóri Bioeffect hf. og hefur víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi, meðal annars úr fjarskiptageiranum þar sem hún var meðstofnandi og forstjóri Nova um árabil.

Lárus er forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Skel fjárfestingafélagi og hefur átt sæti í stjórn Styrkáss frá júlí 2022.