Samfélagsstyrkir

Styrkás hf. lítur á styrkveitingar sem hluta af samfélagsábyrgð sinni og sem leið til að leggja sitt af mörkum til jákvæðrar samfélagslegrar þróunar í því umhverfi sem félög samstæðunnar starfa í. Samstæðan veitir styrki til verkefna í samfélags- og almannaþágu, þar á meðal íþrótta-, æskulýðs-, félags- og menningarstarfs, enda stuðli þau að samfélagslegri uppbyggingu í samræmi við áherslur Styrkás í samfélags- og sjálfbærnimálum.

Styrkás setur sameiginlegan ramma um styrkveitingar innan samstæðunnar. Styrkás og dótturfélög veita styrki innan samþykktrar árlegrar áætlunar, en styrkir sem fara yfir skilgreind viðmið eða hafa stefnumótandi þýðingu eru afgreiddir í samræmi við miðlægt ferli hjá Styrkás.

Allar styrkveitingar eru skráðar á miðlægum stað til að tryggja gagnsæi og ábyrgð.

Styrkjanefnd Styrkás afgreiðir styrktarbeiðnir mánaðarlega og farið er eftir styrkjastefnu félagsins við úthlutun styrkja. Hægt er að kynna sér stefnuna hér.

Öllum styrkjabeiðnum sem berast verður svarað. Ef nánari upplýsinga er óskað er mögulegt er að senda fyrirspurn styrkir@styrkas.is.

Sækja um styrk

Um umsækjanda

Um verkefnið

Flokkur verkefnis

Samkvæmt styrkjastefnu Styrkás eru eftirfarandi flokkar styrkhæfir