24.08.2026
Styrkás fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum

Styrkás hf. hlaut þann 20. ágúst 2026 viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og þar með nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum. Styrkás var á meðal 18 fyrirtækja sem hlutu viðurkenninguna að þessu sinni.
Verkefnið Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum var sett á laggirnar til að bæta eftirfylgni fyrirtækja við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti og gefur fyrirtækjum kost á að undirgangast formlegt mat á starfsháttum stjórnar og stjórnenda. Viðurkenningin er veitt árlega á grundvelli úttektar viðurkennds og óháðs aðila sem tekur mið af leiðbeiningum um stjórnarhætti útgefnum af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Umsjónaraðili verkefnisins er Stjórnvísi.
Styrkás hefur gefið út skuldabréf sem eru skráð í Nasdaq OMX kauphöllinni á Íslandi og hefur hafið undirbúning að skráningu hlutabréfa félagsins á aðalmarkað kauphallarinnar, með það að markmiði að félagið verði skráð á öðrum ársfjórðungi 2027. Með vaxandi stærð Styrkás samstæðunnar hefur verið markvisst unnið að því að styrkja innviði félagsins og innleiða stjórnarhætti í samræmi við leiðbeiningarnar, sem viðurkenningin er staðfesting á.
„Viðurkenning Stjórnvísi er ánægjulegur áfangi í undirbúningi okkar fyrir skráningu á aðalmarkað Nasdaq OMX kauphallarinnar á Íslandi og staðfesting á því góða starfi sem hefur verið unnið innan félagsins undanfarin ár við að byggja upp trausta og vandaða stjórnarhætti,“ segir Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás.


