12.08.2026
Rekstrarhagnaður Styrkás 1,5 ma.kr. á fyrri árshelmingi 2026

Rekstrarhagnaður Styrkás eftir afskriftir (EBIT) nam 1,5 ma.kr. á fyrri árshelmingi 2026 sem er í samræmi við áætlun félagsins. Þjónustutekjur jukust um 10% á milli ára og leigutekjur um 13%. Sölutekjur voru undir áætlun á fyrri árshelmingi sem skýrist af því að afhending seldra tækja sem áætluð var á fyrri árshelmingi færist yfir á seinni árshelming. Hreinsitækni og HRT þjónusta eru hluti af samstæðu Styrkás frá 1. janúar og Gallon varð hluti af samstæðu frá 1. júní. Gjaldfærður einskiptiskostnaður vegna kaupa á Gallon og skipulagsbreytinga í kjölfar kaupanna nam um 100 m.kr.
Afkoma án áhrifa Gallon og einskiptiskostnaðar og samanburður við áætlun:
Millj.kr. Raun 1H Áætlun 1H
Framlegð 7.913 7.861
EBITDA 2.396 2.435
EBIT 1.649 1.679
EBITDAaL 2.009 2.045
Fjárhagsupplýsingar fyrir fyrri árshelming 2026 byggja á bráðabirgðauppgjöri sem liggur fyrir, unnu í samræmi við reikningsskilaaðferðir samstæðunnar (IFRS), en kannaður árshlutareikningur samstæðu Styrkás verður birtur í september.
Orka- og efnavara (Skeljungur)
Skeljungur skilaði afkomu umfram áætlun á fyrri árshelmingi þrátt fyrir að sveiflur í olíuverði hafi hækkað kostnað við áhættuvarnir og fjárbindingu. Eldsneytisframlegð var í samræmi við áætlun en Skeljungur hefur brugðist við auknum sveiflum með því að stytta birgðastöðu og auka kostnaðaraðhald. Kaup Skeljungs á öllu hlutafé í Gallon ehf. gengu í gegn á tímabilinu og verður félagið hluti af kjarnasviði Orku og efnavöru innan samstæðu Styrkás frá og með 1. júní. Gallon rekur birgða- og geymarými á sex stöðum við sjávarsíðuna og sinnir geymslu flugeldsneytis á sjö flugvöllum. Gallon á jafnframt 25% hlut í EBK ehf. sem rekur birgðastöð á Keflavíkurflugvelli og var sá hlutur með í kaupunum. Í kjölfar kaupanna var ráðist í skipulagsbreytingar og tók Þórður Guðjónsson við stjórn Gallon samhliða starfi sínu sem forstjóri Skeljungs. Áætlað er að rekstrarhagnaður Gallon eftir afskriftir (EBIT) verði um 250 m.kr. á ársgrundvelli eftir skipulagsbreytingar.
Tæki- og búnaður (Klettur)
Pantanabók í sölu á tækjum og búnaði er sterk hjá Kletti og inniheldur nú þegar nær alla áætlaða sölu ársins, en stórir afhendingarmánuðir eru framundan á síðari hluta ársins. Afkoma á fyrri hluta árs var undir áætlun sem skýrist af töfum í afhendingum sem færast yfir á síðari árshelming. Afkoma dekkjasviðs er í takti við áætlun og áfram er unnið að hagræðingu í rekstri, m.a. með bættri birgðastýringu og nýtingu húsnæðis. Sameiginleg starfstöð Styrkás samstæðunnar var opnuð að Goðanesi á Akureyri fyrr á árinu, þar sem þungamiðjan er nýtt þjónustuverkstæði Kletts með verslun Skeljungs auk aðstöðu fyrir aðrar einingar Styrkás samstæðunnar.
Eignaumsýsla og leigustarfsemi (Stólpi)
Stólpi skilaði afkomu umfram áætlun á fyrstu sex mánuðum ársins. Sölupípa félagsins er sterk og lauk félagið fyrsta áfanga vinnubúða vegna Hvammsvirkjunar. Nú er unnið að uppsetningu vinnubúða í Sigöldu fyrir Landsvirkjun. Þá hefur Stólpi unnið að þróun hagkvæmra íbúðalausna sem koma á markað á 3. ársfjórðungi. Eftir sameiningu smiðju, kæli- og trésmíðaþjónustu ásamt gámasölu á einn stað í Sægörðum er verkefnastaða góð en áfram er unnið að því að auka skilvirkni rekstrarins. Áður hefur verið upplýst að Börkur Grímsson hyggst breyta um hlutverk hjá Stólpa að eigin ósk og taka við nýju hlutverki með áherslu á uppbyggingu húseiningalausna. Börkur starfar sem forstjóri þar til ráðið hefur verið í starfið.
Umhverfi og iðnaður (Hreinsitækni og HRT þjónusta)
Verkefnastaða er í takti við áætlun en tíðarfar hafði neikvæð áhrif á afkomu Hreinsitækni framan af árinu, auk þess sem verkefni við fóðrun lagna hafa verið undir væntingum. Stjórnendur telja að frávikið muni að stórum hluta vinnast upp á síðari árshelmingi. Samþætting félaganna, sem urðu hluti af samstæðu Styrkás frá 1. janúar sl., hefur gengið vel. Fjárfestingarverkefni hafa verið í skoðun til að auka umsvif sviðsins með innri og ytri vexti.
Fjármögnun og skráning í Kauphöll
Nettó vaxtaberandi skuldir samstæðunnar námu samtals 12,4 ma.kr. í lok júní en vaxtaberandi skammtímaskuldir eru í hástöðu vegna árstíðarsveiflu í veltufjárbindingu.
Þann 2. júlí 2026 undirritaði Styrkás samning við Landsbankann um endurfjármögnun á öllum bankalánum samstæðunnar. Langtímalán að fjárhæð 6 ma.kr. voru endurfjármögnuð til fimm ára með einni höfuðstólsafborgun í lok lánstíma, auk lánalína vegna fjárbindingar í birgðum og kröfum í daglegum rekstri. Breytt afborgunarferli og bætt fjármögnunarkjör skila árlega um 400 m.kr. í auknu sjóðstreymi. Sömu fjárhagslegu skilyrði gilda um bankalánin og skráð skuldabréf félagsins. Samningurinn einfaldar fjárstýringu samstæðunnar, en aukin stærð og áhættudreifing samstæðunnar hafa jafnframt skapað forsendur fyrir bættum lánskjörum.
Landsbankinn hefur verið ráðinn sem umsjónaraðili með fyrirhugaðri skráningu og útboði hlutafjár Styrkás á aðalmarkaði í Kauphöll Íslands, en stefnt er að því að skráning fari fram á öðrum ársfjórðungi 2027. Acro, Fossar fjárfestingarbanki og Kvika banki annast söluráðgjöf í tengslum við útboðið.
Undirbúningur skráningarinnar er á áætlun. Samhliða hefur framkvæmdastjórn samstæðunnar verið styrkt. Birna María Sigurðardóttir, löggiltur endurskoðandi, hefur tekið við starfi fjármálastjóra Styrkás frá og með 1. júlí. Hún fer með ábyrgð á fjárhagslegum undirbúningi skráningar á aðalmarkað í Kauphöll Íslands. Gunnar Skúlason, sem áður gegndi starfi fjármálastjóra, hefur tekið við nýju hlutverki sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og samþættingar með áherslu á samþættingu dótturfélaga og stjórnun vaxtarverkefna.
Horfur
Afkomuhorfur Styrkás eru óbreyttar og gera ráð fyrir að rekstrarhagnaður eftir afskriftir (EBIT) samstæðunnar árið 2026 verði á bilinu 3.350–3.650 m.kr., án áhrifa Gallon.


