01.07.2026

Breyting á framkvæmdastjórn Gallon ehf. 

image

Í framhaldi af kaupum Styrkás hf. á Gallon ehf. og þeirri ákvörðun að starfsemi félagsins verði hluti af kjarnasviði Orku og efnavöru innan samstæðu Styrkás hafa verið gerðar breytingar á framkvæmdastjórn Gallon. Már Erlingsson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Gallon ehf.

Þórður Guðjónsson, tekur við stjórn Gallon samhliða starfi sínu sem forstjóri Skeljungs. Már verður áfram innan handar næstu mánuði og mun vinna að lykilverkefnum auk þess að tryggja góða yfirfærslu verkefna.

„Kaup Styrkás á Gallon styðja við áframhaldandi uppbyggingu kjarnasviðsins Orka og efnavara sem félögin Skeljungur og Gallon mynda. Gallon hefur mikilvægu hlutverki að gegna í þeirri starfsemi og við leggjum áherslu á áframhaldandi þróun kjarnasviðsins. Már hefur gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu Gallon og við þökkum honum fyrir framlag hans, fagmennsku og gott samstarf í gegnum árin,“ segir Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás hf.

 

logo

Fleiri fréttir