12.06.2026

Styrkás birtir grunnlýsingu

image

Styrkás hefur birt grunnlýsingu í tengslum við 10.000.000.000 króna útgáfuramma skuldabréfa og víxla. Grunnlýsingin sem er dagsett 12. júní  2026 hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Grunnlýsingin sem er á íslensku hefur verið birt á vefsíðu Styrkáss styrkas.is/utgafur-skuldaskjala.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hf. hafði umsjón með því ferli að fá lýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Nánari upplýsingar veitir:
Ásmundur Tryggvason, forstjóri
styrkas@styrkas.is

logo

Fleiri fréttir