28.04.2026
Rekstrarhagnaður Styrkás 406 m.kr. á 1. ársfjórðungi 2026

Rekstrarhagnaður Styrkás eftir afskriftir (EBIT) samstæðunnar nam 406 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2026 og var 63 m.kr. undir áætlun. Frávikið skýrist af hliðrun tekna á milli ársfjórðunga þar sem þyngst vegur afhending seldra tækja hjá Kletti sem verður síðar á árinu en áætlun gerði ráð fyrir. Árstíðarsveifla er í rekstri Styrkás og er fyrsti ársfjórðungur umsvifaminnstur í rekstri samstæðunnar.
Orka- og efnavara (Skeljungur)
Skeljungur skilaði afkomu umfram áætlun á ársfjórðungnum þrátt fyrir miklar sveiflur í olíuverði og aukinn kostnað við áhættuvarnir og fjárbindingu. Vel tókst til í kostnaðaraðhaldi og selt magn var umfram áætlun. Kaupsamningur var undirritaður um kaup á öllu hlutafé í Gallon ehf., sem rekur birgða- og geymarými á sex stöðum við sjávarsíðuna og sinnir geymslu flugeldsneytis á sjö flugvöllum. Kaupin eru til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Tæki- og búnaður (Klettur)
Pantanabók í sölu á tækjum og búnaði er í samræmi við áætlun en þungi í afhendingum verður á síðari hluta ársins, sem leiðir til lægri afkomu á ársfjórðungnum en áætlun gerði ráð fyrir. Afkoma dekkjasviðs er í takti við áætlun og áhersla er á hagræðingu í rekstri, m.a. með bættri nýtingu húsnæðis. Klettur vinnur að því að flytja þjónustuverkstæði sitt á Akureyri í nýtt húsnæði við Goðanes, þar sem verslun Skeljungs verður jafnframt staðsett.
Eignaumsýsla og leigustarfsemi (Stólpi)
Stólpi skilaði afkomu umfram áætlun. Vel hefur gengið í sölu og leigu húseininga og stór verkefni eru í vinnslu fyrir opinbera aðila. Unnið hefur verið markvisst í kynningar á húsnæðislausnum félagsins sem hefur skilað sér í auknum áhuga viðskiptavina. Eftir sameiningu smiðju-, kæli- og trésmíðaþjónustu ásamt gámasölu á einn stað í Sægörðum er verkefnastaða góð og grunnur hefur verið lagður að frekari vexti.
Umhverfi og iðnaður (Hreinsitækni og HRT þjónusta)
Afkoma er lítillega undir áætlun, einkum vegna tíðarfars í mars sem olli því að samningsbundin verkefni drógust fram í apríl. Samþætting félaganna, sem urðu hluti af samstæðu Styrkás frá 1. janúar sl., hefur gengið vel. Áhugaverð fjárfestingarverkefni eru í skoðun til að auka umsvif sviðsins með innri vexti.
Fjármögnun og skráning
Styrkás gaf út skuldabréf að fjárhæð 1,7 ma.kr. á ársfjórðungnum með lokagjalddaga árið 2030 og 1,5% álagi ofan á 1 mánaðar REIBOR vexti. Unnið er að skráningu skuldabréfanna í kauphöll fyrir lok júní. Stjórn Styrkás hefur jafnframt ákveðið að hefja undirbúning að skráningu hlutafjár félagsins í Kauphöll Íslands, með það að markmiði að skráning fari fram á öðrum ársfjórðungi 2027. Unnið er að frágangi samninga við umsjónaraðila útboðsins og söluráðgjafa, auk endurfjármögnunar samstæðunnar sem mun ljúka á næstu vikum.
Horfur
Afkomuhorfur Styrkás eru óbreyttar. Rekstrarhagnaður eftir afskriftir (EBIT) samstæðunnar er áætlaður á bilinu 3.350–3.650 milljónir króna árið 2026, án tillits til áhrifa Gallon.


