09.06.2026

Fjölbreytileiki, íslenskunám og sterkari tengsl

image

Hjá dótturfélögum Styrkás starfar fjölbreyttur hópur starfsfólks frá alls 10 þjóðernum, meðal annars frá Úkraínu, Póllandi, Litháen, Lettlandi, Rúmeníu og Pakistan. Samstæðan leggur áherslu á að starfsfólk hafi tækifæri til að nýta hæfileika sína og krafta í starfi óháð kynferði, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.  

Síðustu sex mánuði markvisst verið unnið að innleiðingu íslenskukennslu í gegnum Bara tala appið með það að markmiði að efla starfsfólk og styrkja tengsl á vinnustaðnum. Til að byggja upp þátttöku höfum við meðal annars sett af stað skemmtilegar áskoranir sem hvetja starfsfólk til að æfa sig reglulega í íslensku.

Nýjasta áskorunin, Bara tala vor-spretturinn, fólst í því að læra íslensku daglega í appinu. Sá þátttakandi sem sýndi mesta virkni hlaut gjafakort í Kringluna að verðlaunum. Að þessu sinni var það Mihai Lonut Lacatusu frá Rúmeníu sem stóð uppi sem sigurvegari.

Verkefnið hefur farið fram úr okkar björtustu vonum frá því að innleiðingin hófst og árangur þátttakenda hefur verið eftirtektarverður. Hingað til hefur starfsfólk lokið samtals 3.970 æfingum og nýtt yfir 112 klukkustundir í íslenskunám í appinu.

Að læra íslensku snýst um meira en að læra málfræði og framburð. Það snýst um að geta tekið þátt í kaffispjallinu, átt góð samskipti og myndað sterkari tengsl við samstarfsfólk sitt og vinnustaðinn.

logo

Fleiri fréttir