23.06.2026

Birting grunnlýsingar og skráning skuldabréfaflokkanna STYRK 271015 og STYRK 300125

image

Styrkás hf. hefur birt grunnlýsingu í tengslum við 10.000.000.000 króna útgáfuramma skuldabréfa og víxla. Grunnlýsingin sem er dagsett 12. júní 2026 hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og er birt í tengslum við umsókn um töku skuldabréfaflokkanna STYRK 271015 og STYRK 300125 til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf. Skuldabréfaflokkarnir verða teknir til viðskipta miðvikudaginn 24. júní 2026.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hf. hafði umsjón með gerð grunnlýsingarinnar, staðfestingu hennar hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og töku skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf.

Grunnlýsingin hefur verið birt, ásamt endanlegum skilmálum skuldabréfaflokkanna STYRK 271015 og STYRK 300125, á vefsíðu Styrkás www.styrkas.is/utgafur-skuldaskjala

Nánari upplýsingar veitir:
Ásmundur Tryggvason, forstjóri

logo

Fleiri fréttir