28.10.2026

Styrkás hf.: Rekstrarhagnaður Styrkás 2,7 ma.kr. á fyrstu níu mánuðum 2026

image

Rekstrarhagnaður Styrkás eftir afskriftir (EBIT) nam 2,7 ma.kr. á fyrstu níu mánuðum 2026. Rekstrarhagnaður er 6% undir áætlun tímabilsins en afkomuspá fyrir árið er óbreytt. Hreinsitækni og HRT þjónusta eru hluti af samstæðunni frá 1. janúar og Gallon frá 1. júní. Gjaldfærður einskiptiskostnaður vegna kaupanna á Gallon og skipulagsbreytinga í kjölfar þeirra nam um 100 m.kr. á tímabilinu.

Millj.kr.Raun 9MÁætlun 9M
Framlegð12.07912.188
EBITDA3.8034.016
EBIT2.6992.870
EBITDAaL3.2223.413

Fjárhagsupplýsingar fyrir fyrstu níu mánuði 2026 byggja á bráðabirgðauppgjöri sem unnið er í samræmi við reikningsskilaaðferðir samstæðunnar (IFRS). Upplýsingarnar hafa hvorki verið endurskoðaðar né kannaðar af endurskoðanda félagsins.

Orka- og efnavara (Skeljungur)

Skeljungur skilaði afkomu umfram áætlun á fyrstu níu mánuðum ársins þrátt fyrir að sveiflur í olíuverði hafi hækkað kostnað við áhættuvarnir og fjárbindingu. Eldsneytisframlegð var í samræmi við áætlun en Skeljungur hefur brugðist við auknum sveiflum með því að lækka birgðastöðu og auka kostnaðaraðhald. Gallon varð hluti af kjarnasviði Orku og efnavöru 1. júní og er rekstur félagsins í takti við áætlun.

Tæki- og búnaður (Klettur)

Seinkun varð í afhendingu tækja á fyrri hluta árs og hafa þær afhendingar færst yfir á síðari hluta árs í samræmi við væntingar. Pantanabók Kletts er áfram sterk og eru stórir afhendingarmánuðir framundan á fjórða ársfjórðungi. Afkoma þjónustusviðs og dekkjasviðs eru í samræmi við áætlanir. Flutningur þjónustverkstæðis Kletts og Skeljungsverslunar á Akureyri í nýtt húsnæði í Goðanesi hefur hlotið góðar viðtökur viðskiptavina.

Eignaumsýsla og leigustarfsemi (Stólpi)

Rekstur Stólpa á fyrstu níu mánuðum ársins er í takti við áætlun. Uppsetning vinnubúða fyrir Landsvirkjun í Sigöldu er hafin og er framleiðsla eininga í fullum gangi. Stólpi hefur hafið kynningu á hagkvæmum íbúðalausnum fyrir sveitarfélögum og hafa tíu raðhús verið reist í Stykkishólmi sem byggja á húseiningalausnum. Áfram er unnið að því að auka skilvirkni í rekstri smiðju en verkefnastaða er góð.

Umhverfi og iðnaður (Hreinsitækni og HRT þjónusta)

Afkoma Hreinsitækni og HRT þjónustu á fyrstu níu mánuðum ársins er undir áætlun og hefur frávik fyrri árshelmings ekki unnist upp eins og stjórnendur væntu. Verkefni í tengslum við fóðrun lagna eru undir áætlun og þá er þjónusta við stjóriðju undir væntingum vegna minni umsvifa. Reiknað er með að umsvif fari aftur vaxandi á næstu mánuðum.  

Kaup á Malbikstöðinni

Þann 2. október 2026 undirritaði Styrkás samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Með kaupunum verður til fimmta kjarnasvið Styrkás. Heildarvirði Malbikstöðvarinnar í viðskiptunum nemur 5.080 m.kr., þar af eru 80 m.kr. skilyrtar árangurstengdar greiðslur. Kaupverð lóða er 900 m.kr. Kaupverðið verður greitt með útgáfu 138,7 milljóna nýrra hluta í Styrkás hf., handbæru fé og yfirtöku skulda. Viðskiptin eru háð hefðbundnum fyrirvörum, meðal annars um samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki hluthafafundar fyrir hlutafjáraukningunni. Rekstrartekjur Malbikstöðvarinnar námu 2,8 ma.kr. árið 2025 og EBITDA 779 m.kr. Áætlað er að eiginfjárhlutfall samstæðunnar verði um 48% að viðskiptunum loknum.

Fjármögnun og skráning í Kauphöll

Nettó vaxtaberandi skuldir samstæðunnar námu 12,5 ma.kr. í lok september og var eiginfjárhlutfall 44%. Endurfjármögnun bankalána, sem gengið var frá í júlí, bætir sjóðstreymi um 400 m.kr. á ári. Styrkás hefur hafið undirbúning að skráningu félagsins í Nasdaq OMX kauphöllina á Íslandi, með það að markmiði að félagið verði skráð á öðrum ársfjórðungi 2027.

Horfur

Afkomuhorfur Styrkás eru óbreyttar og gera ráð fyrir að rekstrarhagnaður eftir afskriftir (EBIT) samstæðunnar árið 2026 verði á bilinu 3.350–3.650 m.kr., án áhrifa Gallon og fyrirhugaðra kaupa á Malbikstöðinni.

Nánari upplýsingar veitir: Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, asmundur@styrkas.is

logo

Fleiri fréttir