09.11.2026

Hvernig byggjum við upp sigurlið?

image

Arnar Gunnlaugsson hélt fyrirlestur fyrir starfsfólk Styrkás

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, hélt fyrirlestur fyrir starfsfólk Styrkás og dótturfélaga 28. október. Hann fjallaði um liðsheild, leiðtogahæfni og þá menningu sem býr að baki árangursríkum teymum. Arnar dró upp hliðstæður milli íþrótta og atvinnulífs og ræddi hvernig skýr markmið, traust og hreinskilin samskipti leggja grunn að árangri. Hann lagði áherslu á að árangur byggist ekki síður á samvinnu en hæfileikum einstaklinga, að mistök séu hluti af framförum og að velgengni megi aldrei leiða til sjálfsánægju.

Við þökkum Arnari kærlega fyrir hvetjandi fyrirlestur.

image
logo

Fleiri fréttir