02/05/2026
Styrkás styrkir kjarnasvið orku og efnavöru með kaupum á Gallon ehf.

Styrkás hf. hefur í gegnum dótturfélag sitt Skeljung undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Gallon ehf. Tilgangur kaupanna er að styrkja kjarnasvið Styrkás í Orku og efnavöru. Seljandi er Skel fjárfestingafélag. Kaupsamningurinn er gerður með hefðbundnum fyrirvörum, þar á meðal fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlits og samþykki hluthafafundar Styrkás.
Gallon annast móttöku, geymslu og afgreiðslu eldsneytis frá birgðastöðvum félagsins víðs vegar um landið, þar sem eldsneyti er afgreitt beint um borð í skip og á olíubíla. Félagið rekur birgða- og geymarými á sex stöðum við sjávarsíðuna og sinnir jafnframt geymslu flugeldsneytis á sjö flugvöllum. Birgðastöðin í Örfirisey er með 14 geymslutanka og gegnir lykilhlutverki í starfsemi Gallon sem langstærsta birgðastöð félagsins, bæði hvað varðar geymarými og umfang afgreiðslna.
Velta Gallon árið 2025 nam um 600 milljónum króna og rekstrarhagnaður eftir afskriftir (EBIT) var um 170 milljónir króna. Hjá Gallon starfa sex starfsmenn. Gallon á jafnframt 25% hlut í EBK ehf., sem rekur birgðastöð á Keflavíkurflugvelli og er sá hlutur með í kaupunum.
Heildarvirði Gallon í viðskiptunum (e. enterprise value), að meðtöldum eignarhlut félagsins í EBK ehf., er um 2,9 milljarðar króna. Kaupverð hlutafjár nemur um 600 milljónum króna, þar af verður um helmingur kaupverðs greiddur með útgáfu um 11,8 milljón nýrra hluta í Styrkási hf. Hinir nýju hlutir verða gefnir út á genginu 25,25 krónur á hlut sem er síðasta viðskiptaverð með hlutabréf félagsins.
Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás:
„Kaup á Gallon eru í samræmi við stefnu Styrkás um markvissa uppbyggingu á kjarnasviðum félagsins. Með viðskiptunum er verið að styrkja innviði innan kjarnasviðs orku og efnavöru og efla virðiskeðjuna á sviði eldsneytis- og birgðalausna.“
Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs:
„Kaup á Gallon falla vel að starfsemi Skeljungs og styrkja innviði félagsins á sviði sölu, dreifingar og afhendingar eldsneytis til viðskiptavina. Með kaupunum bætist við mikilvæg sérþekking og innviðir sem styrkja stöðu Skeljungs sem þjónustuaðila á sviði orku, efnavara og innviða.“
Ráðgjafar kaupanda í viðskiptunum eru Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og Logos lögmannsþjónusta. Ráðgjafar seljanda í viðskiptunum eru ARMA Advisory og BBA // Fjeldco.


