06.05.2026
Styrkás styrkir skipulag yfirstjórnar

Styrkás hf. hefur gert skipulagsbreytingar í yfirstjórn samstæðunnar. Breytingarnar eru liður í undirbúningi fyrir frekari vöxt og fyrirhugaða skráningu á aðalmarkað kauphallarinnar.
Gunnar Skúlason, sem gegnt hefur stöðu fjármálastjóra Styrkás, tekur við nýrri stöðu í framkvæmdastjórn samstæðunnar sem framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og samþættingar. Birna María Sigurðardóttir, löggiltur endurskoðandi, hefur verið ráðin sem fjármálastjóri Styrkás og mun taka sæti í framkvæmdastjórn samstæðunnar. Hún hefur störf 1. júlí.
Birna María Sigurðardóttir – nýr fjármálastjóri samstæðunnar
Birna María Sigurðardóttir kemur til Styrkás frá Deloitte, þar sem hún hefur starfað í rúm 18 ár, þar af sem eigandi frá 2017. Undanfarin ár hefur hún gegnt stöðu framkvæmdastjóra rekstrar og fjármála hjá Deloitte. Hún hóf feril sinn á endurskoðunarsviði félagsins og tók síðar við sem sviðsstjóri Áhætturáðgjafar þar sem hún leiddi verkefni og frekari vöxt á sviði áhættustýringar, innri endurskoðunar og fjölbreyttrar ráðgjafar. Birna Maria er með M.Acc.-gráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskóla Íslands, hlaut löggildingu sem endurskoðandi árið 2013 og lauk Advanced Management Program frá IESE viðskiptaháskólanum í Barcelona árið 2023. Birna María mun leiða áframhaldandi uppbyggingu fjármálasviðs samstæðunnar og bera ábyrgð á fjárhagslegum undirbúningi skráningar í Kauphöll.
Gunnar Skúlason – framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og samþættingar
Gunnar Skúlason hefur gegnt stöðu fjármálastjóra hjá Styrkási og Kletti frá árinu 2023 og leitt uppbyggingu fjármálasviðs samstæðunnar. Hann starfaði áður sem sérfræðingur í viðskiptagreind hjá Skeljungi og ráðgjafarfyrirtækinu Expectus. Gunnar er með B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc.-gráðu í aðgerðarrannsóknum frá DTU í Danmörku.Í nýju hlutverki sínu verður Gunnar með áherslu á samþættingu dótturfélaga Styrkás og stjórnun verkefna tengdum innri og ytri vexti félagsins.
Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás:
„Styrkás er á leið inn á nýtt vaxtarskeið. Gunnar mun leiða samþættingu og vöxt samstæðunnar og Birna María tekur við fjármálastjórn og mun gegna lykilhlutverki í undirbúningi skráningar í kauphöll. Við sjáum tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar samstæðunnar og erum vel í stakk búin að nýta þau.“


