20.05.2026
Styrkás hlýtur verðlaunin Þekkingarfyrirtæki ársins 2026

Styrkás hefur hlotið Þekkingarverðlaun Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH) og er Þekkingarfyrirtæki ársins 2026. Verðlaunin eru viðurkenning á markvissum vexti félagsins, skýrri framkvæmd vaxtarstefnu og mælanlegum árangri í rekstrarhagræðingu undanfarin ár.
Þekkingarverðlaun FVH hafa mismunandi þemu ár hvert en í ár eru þau veitt því fyrirtæki sem þykir hafa náð með árangursríkum hætti að bæta við tekjustrauma sína, hvort sem er með ytri vexti eða útvíkkun á rekstri utan kjarnastarfsemi. Sérstök áhersla var lögð á mælanlegan árangur í rekstrarhagræðingu, samnýtingu innviða og mannauðs, skýra vaxtarstefnu og ávinning af sameiningum og samþættingu til viðskiptavina.
Í niðurstöðu sinni taldi dómnefndin að Styrkás hefði skarað fram úr með markvissri uppbyggingu og skýrri framkvæmd vaxtarstefnu sem hefur skapað ný tækifæri og styrkt rekstur félagsins til framtíðar.
Dómnefndin benti sérstaklega á að félagið hafi með árangursríkum hætti þróað nýja tekjustrauma og náð fram mælanlegum árangri í rekstrarhagræðingu, meðal annars með skilvirkri nýtingu innviða og mannauðs. Jafnframt taldi dómnefndin að Styrkás hefði sýnt fram á hvernig markviss samþætting, skýr framtíðarsýn og öflug framkvæmd geta skilað raunverulegum ávinningi – bæði fyrir viðskiptavini og rekstur félagsins í heild.
Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás:
„Við hjá Styrkás erum afar þakklát fyrir þann heiður að hljóta verðlaunin Þekkingarfyrirtæki ársins 2026. Styrkás setti sér það markmið í upphafi að vera leiðandi þjónustufyrirtæki með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. Síðan þá höfum við markvisst unnið að uppbyggingu fjögurra kjarnasviða með innri og ytri vexti, samnýtingu innviða og að samþætta reksturinn á þann hátt að það skili sér bæði í hagkvæmari rekstri og betri þjónustu við viðskiptavini. Framtíðarsýn okkar er skýr, við erum tilbúin fyrir áframhaldandi vöxt og við höfum sett stefnuna á skráningu í kauphöll Íslands á öðrum ársfjórðungi 2027. Verðlaunin eru okkur í senn staðfesting á því að við séum á réttri leið og hvatning til að setja markið enn hærra.“


