25.06.2026
Skuldabréfaflokkar Styrkás teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland

Miðvikudaginn 24. júní 2026 voru skuldabréfaflokkar Styrkás, STYRK 271015 og STYRK 300125, teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Skráningin tengist 10 milljarða króna útgáfuramma skuldabréfa og víxla. Grunnlýsing, dags. 12. júní 2026, hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.
Í tilefni skráningarinnar mættu fulltrúar félagsins í Kauphöllina og hringdi forstjóri Styrkás, Ásmundur Tryggvason, Nasdaq bjöllunni.
Grunnlýsingin og endanlegir skilmálar skuldabréfaflokkanna eru aðgengilegir á styrkas.is/utgafur-skuldaskjala.
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hf. hafði umsjón með gerð grunnlýsingarinnar, staðfestingu hennar hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og töku skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf.


