03/26/2026
Ný stjórn kjörin hjá Styrkás og árs- og sjálfbærniskýrsla gefin út

Aðalfundur Styrkás hf. var haldinn 25. mars 2026 þar sem ný stjórn félagsins var kjörin. Liv Bergþórsdóttir kemur inn í stjórn félagsins. Í stjórn Styrkás sitja Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, Berglind Halldórsdóttir, Hermann Már Þórisson, Lárus Árnason og Liv Bergþórsdóttir. Varastjórn skipa Ásgeir Þorláksson og Arnar D. Arngrímsson.
Liv Bergþórsdóttir er forstjóri Bioeffect hf. og hefur víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi, meðal annars úr fjarskiptageiranum þar sem hún var meðstofnandi og forstjóri Nova um árabil. Með komu hennar styrkist stjórn félagsins enn frekar. Fráfarandi stjórnarmaður, Sunna Björg Helgadóttir, sem nýverið tók við starfi forstjóra Rio Tinto á Íslandi, hefur lagt mikilvægt framlag til starfsemi Styrkás á starfstíma sínum í stjórn og er henni þakkað fyrir gott og árangursríkt samstarf og óskað velfarnaðar í nýju starfi.
Stjórn félagsins býr yfir víðtækri reynslu á sviði fjármála, rekstrar og viðskiptaþróunar sem styður við áframhaldandi uppbyggingu Styrkás samstæðunnar.
Árs- og sjálfbærniskýrsla Styrkás fyrir árið 2025 hefur jafnframt verið birt. Í skýrslunni er gerð grein fyrir rekstri samstæðunnar, helstu áherslum og framvindu í sjálfbærnimálum. Skýrsluna má lesa hér


