02/04/2026
Afkoma umfram áætlun og sterkur vöxtur kjarnasviða

Styrkás samstæðan skilaði sterkri afkomu á árinu 2025. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam um 2,5 milljörðum króna og var umfram áætlun ársins. Þjónustutekjur jukust um 29%, leigutekjur jukust um 11% og góður vöxtur var í sölutekjum á öllum kjarnasviðum samstæðunnar.
Afkoman endurspeglar skýra stefnu Styrkás um að byggja upp öflugt þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði til að þjónusta innviðauppbyggingu og atvinnuvegafjárfestingu. Kjarnasvið samstæðunnar hafa tekið á sig skýra mynd, samstarf kjarnasviða hefur aukist og efnahagur samstæðunnar er sterkur, sem skapar traustan grunn fyrir áframhaldandi vöxt.
Afkoma kjarnasviða 2025
Framlegð í Orku og efnavöru (Skeljungur) jókst um 7% þrátt fyrir samdrátt í komu skemmtiferðaskipa til landsins. Samdráttinn má rekja til aukinna kolefnisgjalda og skattheimtu sem leiddi til þess að eldsneytissala til skemmtiferðaskipa og íslenskra skipa færðist að hluta til nágrannalanda. Á móti jókst hlutfall þjónustutekna, meðal annars vegna þess að Skeljungur tók yfir rekstur eldsneytisafgreiðslu á Reykjavíkurflugvelli um áramót og þjónustar nú 17 flugfélög á Keflavíkurflugvelli. Gjaldþrot flugfélagsins Play hafði óveruleg áhrif á rekstur félagsins.
Á sviði Tækja og búnaðar (Klettur) var árið mjög sterkt í sölu atvinnubifreiða og vinnuvéla, þar sem bæði Scania og Caterpillar voru með leiðandi markaðshlutdeild í sínum flokkum. Vöruframboð Kletts breikkaði jafnframt með nýju umboði fyrir sölu og þjónustu á Merlo skotbómulyfturum. Fyrri hluti ársins einkenndist af áskorunum í þjónustutekjum vegna aukins álags í kjölfar mikillar sölu undanfarinna ára, en jafnvægi náðist á seinni hluta ársins.
Í Eignaumsýslu- og leigustarfsemi (Stólpi) nam vöxtur sölutekna tæplega 50% milli ára. Á árinu opnaði Stólpi nýtt athafnasvæði að Gullhellu í Hafnarfirði og hefur unnið markvisst að kynningu á fjölbreyttum og hagkvæmum lausnum á sviði húsnæðis- og aðstöðusköpunar. Meðal stærri verkefna ársins voru afhending nýrrar lögreglustöðvar í Reykjanesbæ og aðstöðusköpun fyrir Landsvirkjun við Hvammsvirkjun.
Hreinsitækni og HRT þjónusta komu inn í rekstur samstæðunnar frá 1. janúar 2026 og mynda nýtt kjarnasvið í Umhverfis- og iðnaðarþjónustu. Afkoma ársins var í samræmi við áætlun. Ákveðið var að fella niður samkomulag um kaup á Hringrás þar sem skilyrði samkomulagsins voru ekki uppfyllt.
Undir lok árs var stofnað félagið Styrkás Fasteignir, sem heldur utan um fasteignir og lóðir samstæðunnar. Félagið á fasteignir sem eru samtals um 3 þúsund fermetrar að stærð auk um 68 þúsund fermetra lóða en þar af eru um 30 þúsund fermetrar sem unnt er að þróa undir framtíðarstarfsemi samstæðunnar.
Nettó vaxtaberandi skuldir samstæðu Styrkás námu 5,3 milljörðum króna í árslok og endurspegla meðal annars fjármögnun á kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu. Handbært fé móðurfélagsins nam 3,6 milljörðum króna í lok árs sem veitir samstæðunni gott svigrúm til áframhaldandi vaxtar.
Styrkás gaf á árinu út skuldabréf með 1,5% álagi ofan á REIBOR vexti, sem hafa m.a. verið nýtt til að endurfjármagna skuldir samstæðunnar. Skuldabréfin verða tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland á fyrri hluta þessa árs.
Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás:
„Niðurstöður ársins sýna að stefna Styrkás er að skila árangri nú þegar kjarnasvið samstæðunnar hafa tekið á sig skýra mynd. Reksturinn er traustur, tekjustoðir fjölbreyttar og samvinna innan samstæðunnar að aukast. Þessir þættir stuðla bæði að sveiflujöfnun í rekstri og skapa einnig ný sóknarfæri fyrir samstæðuna. Efnahagur samstæðunnar er sterkur sem skapar skilyrði til áframhaldandi vaxtar.
Kjarninn í starfsemi okkar er að veita fyrirtækjum framúrskarandi þjónustu sem styður við uppbyggingu atvinnulífs og innviða. Sá árangur sem náðist á árinu er fyrst og fremst afrakstur öflugs starfsfólks og góðs samstarfs við viðskiptavini“
Horfur ársins 2026
Rekstrarhagnaður eftir afskriftir (EBIT) samstæðunnar, með nýju kjarnasviði í Umhverfis- og iðnaðarþjónustu (Hreinsitækni og HRT þjónustu) er áætlaður á bilinu 3.350–3.650 milljónir króna árið 2026.
Áfram er gert ráð fyrir vexti í leigu- og þjónustutekjum á öllum kjarnasviðum samstæðunnar, en að hægi á sölu nýrra tækja og búnaðar. Reiknað er með áframhaldandi samdrætti í sölu eldsneytis til skemmtiferðaskipa. Þá er gert ráð fyrir aukningu í opinberum útboðum, sem skapar tækifæri til frekari sóknar, meðal annars með auknu samstarfi milli kjarnasviða samstæðunnar í tengslum við stærri innviða- og atvinnuvegafjárfestingar.


