Þjónusta við uppbyggingu
Við veitum þjónustu til fyrirtækja sem starfa við uppbyggingu innviða og atvinnuvega. Þú ert við stýrið í þínum rekstri, Styrkás aðstoðar þig við að ná árangri.



No animation data available
Þjónusta við uppbyggingu – Forsenda framfara
Starfsemin
Styrkás er þjónustufyrirtæki við atvinnulífið. Dótturfélög Styrkás starfa á sviði orku og efnavöru undir vörumerki Skeljungs, tækja og búnaðar undir vörumerki Kletts og eignaumsýslu undir vörumerki Stólpa.
Framtíðarsýn
Styrkás hefur markað sér stefnu um að byggja ofan á sterkar stoðir samstæðunnar með innri og ytri vexti á fimm kjarnasviðum, orku og efnavöru, tækjum og búnaði, umhverfi, iðnaði og eignaumsýslu- og leigustarfsemi. Styrkás stefnir að skráningu í Kauphöll Íslands fyrir árslok 2027.



Öflugur samstarfsaðili
Framundan eru fjárfestingar í innviðum og uppbyggingu atvinnugreina sem verða undirstaða hagvaxtar framtíðarinnar. Starfsemi Styrkáss miðar að því að veita framúrskarandi vörur og þjónustu og vera þannig öflugur samstarfsaðili við uppbyggingu innviða og atvinnulífs.











